Þá er Noregsferðin hafin og búin. Býst fastlega við því að Frónbúar séu lentir á Keflavíkurflugvelli og á leiðinni heim til sín (eða í búðir)
Ég lagði af stað frá Stavanger um hádegisleytið á miðvikudaginn, aldeilis klár í slaginn, því ég var bara með handfarangur. Það hélt þó ekki lengi, þar sem hárspreyið mitt var upphaflega 150 ml, mátti ég ekki fara með það í gegnum sekjúritíið á flugvellinum. Ég neyddist því til að tékka það inn, ég nennti ómögulega að fara að raða upp á nýtt (flugvallarstarfsmannahelt) í töskuna og tékka hana inn, og tæmdi því hliðartöskuna mína, setti vökvapokann í hana og tékkaði hana inn, næstum tóma. Konunni í inntékkinu fannst ég hrikalega fyndin, en ég var bara fúl.
Ég náði inn til Osló um fjögurleytið, fann þetta líka stórglæsilega hostel í miðbæ Oslóar og þar á annarri hæð biðu pabbi, Elísabet og Hrafnhildur. Það var æðislegt að hitta þau aftur og eftir smá spjall og ferðasögur, héldum við í búðir. Við komum heim um níuleytið og komumst þá að því að hostelið okkar var ekki bara stórglæsilegt, heldur líka alveg hrikalega vel staðsett, með hina ýmsu þjónustu bara rétt fyrir utan dyrnar og handan við hornið.
Fimmtudeginum eyddum við í Hönefoss og nágrenni, þar sem Elísabet og fjölskylda áttu einu sinni heima. Við skoðuðum gamla húsið þeirra, komumst að því að það er búið að stækka leikskólann hans Ólívers alveg gígantískt og borðuðum á einum besta Peppes Pizza stað, sem ég hef komið á. Við skoðuðum líka glerverksmiðjuna, sem er þarna einhvers staðar rétt hjá (Elísabet, þér er velkomið að bæta inn nafni og staðsetningu verksmiðjunnar), þar fengum við að fara inn í verksmiðjuna og sjá hvernig gler er blásið. Einnig skoðuðum við safnið þeirra og fundum allavega 2 skálar sem líkjast/eru eins og skálar sem eru að rykfalla í Hrauninu. Við skoðuðum restina af staðnum, allskonar flottar búðir með gleri og fleira. Svo keyrðum við heim til Osló og skiluðum bílnum. Það má geta þess að það var ég sem keyrði bílinn af minni einskærru snilld, klessti ekki á neinn eða neitt og það tók systur mína næstum allan daginn að verða mjög pirruð, sem mér þykir bara góður árangur.
Hápunktur föstudagsins var líklega þegar Elísabet fór að hitta vinkonur sínar, við hin fórum nefnilega í Náttúrusögusafnið og það er sko eitthvað sem allir ættu að skoða. Þarna eru örugglega öll dýr sem hægt er að hugsa sér, auk fullt af steingervingum og steinum og allskonar sögulegu dóti. Hrikalega flott alveg!
Á laugardaginn hittum við hóp af fólki, sem var að koma á ráðstefnu Norræna MND félagsins. Elísabet var nefnilega fararstjóri hópsins og pabbi ætlaði að sitja ráðstefnuna sem einn af stjórnarmeðlimum MND félagsins á Íslandi. Ég og Hrafnhildur vorum svo fylgifiskar. Við fylgdum hópnum á hótelið, þar sem allir voru tékkaðir inn og hótelið skoðað. Við Hrafnhildur urðum voðalega glaðar þegar við fundum ísvél og poppvél þarna í lobbýinu, þar var líka kaffi, vatn, kökur og ávextir og allt ókeypis. Getið rétt ímyndað ykkur hvað var borðað mikið af ís og poppi þessa daga
Við löbbuðum líka niður í miðbæ Jessheim (hótelið var um 3 km fyrir utan Jessheim) og keyptum nokkrar nauðsynjavörur í Rimi og borðuðum svo heimsins verstu hamborgara á einhverri búllu á móti. Við tókum leigubíl heim og fundum í leiðinni risaverslanamiðstöð ásamt bæði Peppes Pizza og Dolly Dimples.
Á sunnudeginum var öllum íslenska hópnum smalað upp í bíla og keyrt til Osló. Þar skoðuðum við Vigelandpark, þar sem allar stytturnar eru, löbbuðum niðureftir í hallargarðinn og enduðum svo á Egon í Paléet. Kvöldinu var eytt á hótelherberginu og nauðsynjarnar frá Rimi borðaðar.
Mánudagur og þriðjudagur voru afskaplega afslappaðir, við eyddum fyrripart dags á hótelherberginu, þar sem Elísabet var hálfmeðvitundarlaus og Hrafnhildur var límd við tölvuskjáinn, enda setti hún met í Hannah Montana áhorfi þessa viku, hún horfði á rúmlega 40 þætti! Ég naut þess hinsvegar að horfa á sjónvarpið, enda ekki oft sem maður getur horft á sjónvarp á daginn með góðri samvisku
Á mánudag eftir ráðstefnu var farið í powerverslunarferð til Jessheim, höfðum um 2 klukkutíma frá ráðstefnulokum fram að kvöldmat og flestum tókst alveg að koma heim með 1-17 poka. Á þriðjudaginn var svo aðeins meiri tími fyrir verslunarleiðangur og fóru margir aftur, svona til að klára 
Svo pakkaði ég niður í gær, svo ég yrði tilbúin að hoppa upp í rútuna um kvöldið og út á völl, sem ég gerði. Ég var þó komin aftur á hótelið um klukkutíma seinna, því snillingurinn ég keypti heimferð á vitlausum degi og á því flugferð frá Osló til Stavanger annað kvöld, ef einhvern langar. Flugferðin í dag var hinsvegar andskoti dýr og setur líklegast stórt strik í matarskammt næsta mánaðar
En svona er að vera ég...