Fjölskyldan í Borgarhrauninu

Velkomin í Borgarhraunið

29.06.2006 16:00:23 / elísabet

ekki alveg hress enn.....

Ef það eru einhverjar fleiri pestir en ælupest og flensa (hiti, beinverkir, höfuðverkur, hita/kuldaköst), þá óska ég vinsamlegast eftir því að við fjölskyldan að Reykjamörk 1 smitust ekki af því um sinn. Við erum á leiðinni til Svíþjóðar í frí!!!

 

 



Nei svona grínlaust þá er þetta alveg hreint ótrúlegt. Ég er búin að vera veik síðan áður en það byrjaði að rigna fyrir svona mánuði síðan (að undanskilinni síðustu viku). Mér finnst það allavegana. Ég sem ætlaði að vera svo dugleg og fara með Ólíver Dór í sund á hverjum degi hef bara legið í rúminu og hóstað þurrum hósta. Lítið gaman að því.

 

 



Emma er að byrja hjá henni Krístínu í pössun. Líst voðalega vel á þetta. Enn sem komið er, er Máney Sól heima en hún á að byrja í leikskóla í haust. Þarna er fullt af dóti, 2 kettir (ég veit, aumingja kettirnir) og mikið pláss. Bara frábært!

 

 



Jæja, er að verða þreytt, þið skilijð, ég er enn veik (með hita) og er búin að vaka í alveg 3 ½ tíma, það virðist vera nóg fyrir mig í bili.

 

 



Hóst, hóst, Beta


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:05:09 / elísabet

einu sinni enn:(

Já, það á ekki af okkur að ganga. Ælupestin var ekki fyrr búin en að við tók hiti og beinverkir. Og í þetta sinn slapp Örvar ekki. Ólíver Dór byrjaði að venju (upp á Reykjum, hvað annað?), svo veiktist Emma Dís, þá ég og síðast Örvar. Örvar var nú reyndar bara heima í einn dag, en ég virðist ekki ætla að ná mér jafnfljóttL. Enn að fá hitakófsköst og beiverki af og til. En svo lengi sem að ég verð búin að ná mér fyrir miðvikudaginn næsta þá er mér eiginlega sama. Fúlt ef að maður væri veikur í sumarfríinu sínu.

 

Tútílú, Beta


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 09:21:21 / elísabet

Sól, sól skín á mig!!!

Já í dag er sennilega fyrsta skiptið sem að ég hlakka til að fara með syni mínum á sundnámskeið, og ekki seinna vænna. Þetta er jú, síðasta skiptið í dag Greyið er búinn að læra að synda í roki, roki og rigningu eða skýuðu veðri (sem hljómar bara eins og 30 stiga hiti í samanburði við hitt). Hann er orðinn frekar flinkur miðað við hvað hann var hræddur í fyrsta skiptið. Getur kafað frekar lengi (vill helst bara gera það), spyrnt sér í botninn og haldið sér svo á floti í svona 2-3 sek (hljómar eins og maður ætti ekkert að segja frá því, en er rosalegur árangur fyrir ósynt barn). Hann gæti líka orðið afbrags bakssunds sundmaður.

Við fórum á fund hjá MND félaginu í gær. Það var hátíðardagur, enda alþjóðlegur dagur MND sjúkdómsins. Mikið um ræður og góðar tertur. Pabbi fór svo eftir fundinn til afa hennar Júlíu í heimsókn, með Júlíu og Hrafnhildi með sér auðvitað, en ég fór í Kirkjuteiginn þar sem að við hittum Örvar og svo auðvitað allt gengið þar.

Á morgun ætla ég svo að fara upp að Reykjum með fullan bíl að krökkum (ÓD, ED, HH, JN). Tengdamamma var að kaupa alveg heilan hauga af runnum, fjölæringum og sumarblómum. Hringdi í mig og bað mig um að hitta sig hjá Ingibjörgu, svo ég gæti hjálpað henni að velja plöntur í nokkur beð. Svo sagði hún þegar við vorum að fara að borga að þetta væri svo mikið af plöntum, (kenndi mér um það að eiga allt of mikið af kerjum og nýjum beðum) og sagði að ég yrði að koma uppeftir og hjálpa henni að raða þessu. Og það svo sjálfsagt að hjálpa henni að setja plönturnar niður, þetta er eitt af því sem að ég geri vel og finnst svo, svo gaman (í sól, auðvitað). Í öðru lagi þá er nú ekki eins og ég sé að vinna 100% vinnu svo að ég hef nógan tíma (með smávegis skipulagningu), en síðast en ekki síst....... ég er þekkt fyrir að vera flink að kaupa mikið/eyða mikið, sérstaklega þegar er ekki um mína peninga að ræða, svo það að hún keypti mikið af plöntum, nú það er það sem ég geri best....að kaupa/eyða

Tútílú, Beta


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 21:42:33 / berglind

...og þá kom sólin!

Vaknaði í morgun og allt var einhvern veginn öðruvísi... Það hefur stytt upp í Hveró og sólin hefur aldeilis skinið skært í dag, hefur greinilega saknað okkar mikið því klukkan er orðin kvöld og enn skín sólin :) Bara eins gott fyrir hana að yfirgefa okkur ekki nærri strax!

Annars haltra ég um á 9 tám þessa dagana, lét lækni skera upp aðra stóru tána um daginn, atvinnuveitanda mínum til svakalega mikillar "ánægju"... Er með fimmfaldar umbúðir um tána og kemst ekki í neina skó fyrir vikið... Það var pínulítið asnalegt að haltra inn á heilsugæsluna í dag til að láta skipta um umbúðir á tánni, í einum skó og berfætt á hinum ;) en eftir umbúðaskipti get ég nokkurn veginn stigið rétt í fótinn, heilmikill munur...


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 19:06:56 / elísabet

Jes, jes

 

 



Ef það er ekki komið nóg af rigningu og roki, þá veit ég ekki hvað!!!? Ég er virkilega að hugsa um að pakka öllu draslinu mínu í gám og senda til Noregs, vitiði....ég er jafnvel opin fyrir Evrópu!!! Komin með fullnóg af þessum pakkanum.

 

 



Ólíver Dór er alltaf á sundnámskeiði, og orðin svo flinkur. Hann sem á fyrsta degi ríghélt í hálsinn á mér og orgaði ef að ég svo mikið sem hagræddi takinu sem að ég hafði um mittið á honum, er farinn að kafa einn!! Ég mátti sko ekki snerta hann þegar hann var að koma upp, hann getur þetta bara ALVEG einn. Svo þegar við komum upp í pottinn þá er bara verið að kafa í honum, kemur varla upp úr.

 

 



Júlía er enn í Borgarhrauninu og allt gott um það að segja. Hún passar fyrir mig með Hrafnhildi og er svo blíð og góð alltaf. Ég gæti ekki verið heppnari held ég! Vona bara að hún verði sem allra lengst.

 

 



Jæja, er svo upptekinJ

Beta


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 17:47:19 / berglind

17. júní, áframhaldandi afmælisveislur og gubbupestir

Þá er 17. júní liðinn og það var nú bara ferlega gaman hér í Hveró, eins og venjulega... Var reyndar í fyrsta skipti í mööörg ár sem ég hef verið heima og ekki að vinna eða spila. Það var gaman.

Við byrjuðum daginn á að fara í ratleik um nágrenni Varmár, við unnum ekki en stelpurnar stóðu sig nú samt mjög vel. Svo eftir hádegi fórum við í skrúðgöngu með hestum, skátum og trommusveit upp í sundlaug þar sem hátíðahöldin fara venjulega fram. Halldór Gylfason var kynnir og var alveg ógurlega fyndinn, eitthvað var um ræður og fjallkonur en laugarspaugið er það sem maður bíður eftir allan tímann. Þá keppa félög og fyrirtæki í allskonar þrautum sem allar hafa þann tilgang að gera fólkið sem keppir að fífli og að þau blotni sem mest, voðalega gaman fyrir alla hina sem sitja uppi í brekku :)

Svo þegar laugarspaugið var búið, þá drifum við okkur heim og héldum upp á afmælið hennar Hrafnhildar í annað skiptið og núna komu ættingjar í heimsókn... Það var alveg nóg af kökum og dóti, svo nóg að við gátum haft þær í kaffinu í dag og enn er afgangur...

Í dag var svo planið að fara á Stokkseyri í Töfragarðinn, en að sjálfsögðu var ekki hægt að framfylgja því plani því nú var víst komið að Hrafnhildi að fá gubbupest og liggur hún inni í rúmi og horfir á dvd með smá pásum til að hlaupa fram á klósett... og svo er bara pabbi eftir!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 16:43:37 / berglind

Ælupest, andarungar og afmæli

...og í þetta skiptið var það hún Júlía sem gubbaði svona líka duglega á milli 6 og 9 í morgun... Hún er ansi skæð þessi gubba! En stelpunni líður eitthvað betur og njóta Hrafnhildur og Ólíver Dór heldur betur góðs af veikindum Júlíu því núna kúra þau öll þrjú inni í "afa rúmi" með þrívíddargleraugu á nefinu og horfa á Shark Boy & Lava Girl...

Afmælið í gær gekk bara ágætlega, krakkarnir fengur pizzur og kökur og nammi og snakk og gos og held ég að ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að allir fóru pakksaddir heim :) Það var horft á dvd og farið í leiki og svo keppt í Eye Toy... En mér persónulega finnst langskemmtilegast þegar afmælið er búið og maður getur sest niður og hugsað: og nú þurfum við ekki að gera þetta aftur fyrr en eftir ár!"

Í morgun fengum við svo afar skemmtilega heimsókn. Tvær vinkonur Hrafnhildar fundu andarunga niður við á, sem var yfirgefinn af mömmu sinni og tóku þær hann í fóstur. Þetta var svona ekta andarungi, pínkupons með gular og svartar fjaðrir og svo ferlega sætur :)

Svo er bara 17. júní á laugardaginn, fólkens! Hér í Hveró verður svaka dagskrá, hefur sjaldan verið jafn flott, byrjar með sundmóti á morgun og svo er ratleikur og morgunkaffi, Laugarspaug, og kaffi í skólanum á sautjándanum. Hér í Borgarhrauninu verður að sjálfsögðu frænkuogfrænda afmæli Hrafnhildar eftir dagskrána, svo það er margt að gera...

En ætla að skreppa í vinnuna, sí jú leiter...

Berglind


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 09:32:30 / elísabet

Ælupestin "strikes again"

Það er nú meira hvað þessi ælupest er bráðsmitandi!! Örvar byrjaði (sem er nú reyndar ekki vanalegt), svo var það Emma Dís og svo ég. Eftir það fluttist pestin yfir til Berglindar ( sem sér sennilega frekar eftir því að hafa verið að hanga svona mikið heima hjá mér um helgina) og nú er það afmælisbarnið, hún Hrafnhildur. Byrjaði að æla í gærkvöldi, eftir sundæfingu. Og nú finn ég til með aumingja Júlíu sem að kom í smá sumarfrí í hveró og uppsker sennilega ekkert annað en ælupest úr því:( Greyin litlu.

En engu að síður:

Innilega til hamingju með afmælið elsku Hrafnhildur okkar. Þú ert best!!!!!

Var ég annars búin að segja ykkur að hún Hrafnhildur var með nánast fullt hús í einkunnunum sínum í vor. Það er ekkert gefið eftir í þessari baráttu við systur sínar:)

Tútílú, Beta


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 19:26:52 / elísabet

Eitt lítið fréttabréf!

Halló allir saman.

 

 



Ég ætla ekkert að minnast á hversu langt er síðan ég bloggaði síðast, kem bara illa út í því samhengiJ En hvað er búið að vera að gerast hjá okkur;

 

 



Ég byrjaði að vinna í Eden, og hætti. Ég og Eden pössuðum ekkert svo vel saman.

Ólíver Dór er á sundnámskeiði og fílar sig vel. Var reyndar svo kalt í gær að hann hefði gefist upp eftir 5 mín í vatninu, ef það væri ekki fyrir leiðinlegu mömmuna sína sem neitaði honum um heita pottinn fyrr en námskeiðið var búið.

Emma Dís er byrjuð að ganga á fullu með hlutum (á alveg ógnvekjandi hraða), farin að tæta út úr skápum og skoða allt sem að hún getur. Það þýðir ekkert að “fela”  hluti lengur, hún bara finnur þá. Þetta er gáfuð stelpa. Hún klappar á fullu, felur sig og sýnir hversu stór hún er. Hún er greinilega farin að sýna hver er skemmtilegastur og í augnablikinu er afi Dóri bestur, mun betri en mamma. Hreint og beint grætur á eftir honumJ Amma Elín er líka rosa sniðug og svo það sé nú ekki minnst á Hrafnhildi og Berglindi.

Berglind er komin heim, liggur reyndar í rúminu með ælupest. Greyið!!!

Hrafnhildur á afmæli á morgun að verða 10 ára pían. Hún og pabbi eru nýkomin úr brúðkaupi fyrir vestan, Ingvar og Fanney eru hérmeð gift og sæl. Nonni og Lína eru svo að fara að gifta sig eftir einn mánuð. Til að útskýra tengslin þá eru við strákarnir systkinabörnJ

Örvar er bara á fullu í vinnunni. Hann er búinn, í aukavinnu, að vera að þjálfa krakka í frjálsum í vetur og í júlí þá er verið að fara á mót í Svíþjóð í heila viku. Eftir smá uppásnúning á hönd þá bauð hann okkur ALVEG sjálfviljugur með í ferðina. Okkur hlakkar mikið til að komast úr rigningunni og geta verið í stuttbuxum og buslað í vatni!!

Júlía Nicole litla frænka mín (Finnbogadóttir) er komin í sumardvöl (1 viku eða svo) til föður míns. Það er mikill spenningur fyrir þessu á heimilinu, verður gaman að sjá hvernig frænkunum kemur saman.

 

 



Eitt í lokin, ég fékk fyrri ljóðabók Vals í póstinum um daginn. Segi bara takk fyrir mig, vona að þú nennir að lesa blogg annara áfram þrátt fyrir að vera hættur sjálfur.

Sumarkveðjur, Beta


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 15:39:43 / berglind

Einbúi

Þá eru pabbi og Hrafnhildur lögð af stað í annað ferðalag sumarsins. Nú er ferðinni heitið vestur til Ísafjarðar þar sem Ingvar og Fanney ætla að gifta sig á morgun.

Það er alltaf ákveðið ferli sem fer í gang þegar hún systir mín hin yngri á að fara eitthvað "fínt". Ég er yfirleitt fengin til að finna á hana föt og gengur það oftar en ekki frekar illa, því letts feis it, hún á nú ekkert of mikið af fínum fötum... Og það sem mér finnst fínt (og viðeigandi við tilefnið) er ekki endilega það sem hún vill fara í. Þetta endar, eftir smá tíma af væli og veseni, yfirleitt með því að ég gefst upp og hún fær að fara í því sem hún vill fara í.

Og þar sem við fórum að sjálfsögðu í gegnum þetta skemmtilega ferli við niðurpakkningu í töskuna, þá vil ég bara segja að ef hún lítur frekar út fyrir að vera á leið í jarðarför, frekar en brúðkaup, þá kom ég engu staðar nálægt því!


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 47171
Könnun
Er kominn tími til að hætta ?
0 atkvæði

Nei
4 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
Aðrar síður fjölskyldunnar