Fjölskyldan í Borgarhrauninu

Velkomin í Borgarhraunið

14.02.2008 20:15:14 / berglind

Hæ dí hó

Datt í hug að skrifa smá blogg, því ég á að vera að gera hljómfræði og ég nenni ekki að byrja á því alveg strax... ;)
Hér í útlandinu er vorið rétt handan við hornið. Síðan í byrjun vikunnar hafa hópar af fuglum flogið hér yfir með tilheyrandi gargi og hljóðum, komst að því að ég er enn traumatíseruð eftir að hafa séð Birds hér í denn, því ég þorði varla út fyrsta morguninn ;)
Skólinn gengur bara vel, fyrstu verkefnaviku ársins lauk með tónleikum á sunnudagskvöldið. Hljómsveit skólans spilaði á hátíðartónleikum Shellprisen, sem eru frekar virt tónlistarverðlaun í Rogaland fylki. Við spiluðum meðal annars Candide Overture af Bernstein og svo nokkur lög með söngvurum, sem hafa fengið þessi verðlaun áður. Þetta var alveg hrikalega gaman, eitt af skemmtilegustu verkefnunum og ekki skemmdi fyrir hvað sumar söngkonurnar voru hrikalega fyndnar :)
Það er margt á dagskrá fyrir vorið, allir á 2. ári við tónlistardeildina fara til Voss á þjóðlaganámskeið fyrstu vikuna í mars, það er örugglega skemmtilegt. Verðum í Ole Bull Akademiet, sem er svona þjóðlagatónlistarskóli og er þjóðlagatónlist, þjóðdansar og safnaferðir meðal þess sem er á dagskránni þarna. Get ekki beint sagt að mig hlakki til dansins, þar sem ég er með tvo vinstri fætur, en í heildina lítur þetta spennandi út. Svo er víst skíðasvæði þarna og gæti verið að við fáum að skjótast á skíði, jei :) Svo verður önnur verkefnavika strax eftir páska, þar sem á meðal annars að æfa Chaminade Concertino fyrir flautu og hljómsveit, sem er einn af mínum allra uppáhalds :)
Svo já, það er alltaf fullt að gerast hér í Stavanger :)

Af öðrum í fjölskyldunni er eflaust margt að frétta, en þar sem það vantar algerlega minniskubbinn í mig, þá væri auðvitað óskandi að einhverjir aðrir myndu blogga (hint, hint!!)

Pabbi er bara að vinna og eflaust eitthvað að undirbúa veiðina í sumar, hnýta nýjar flugur og svona. Svo stundar hann stíft foreldrafundi hjá skátafélaginu, því heimasætan byrjaði í skátunum í haust og er að fara á landsmót í sumar. (En ekki fær hún nú að fara ein, því stóra systir vildi endilega troða sér með og endaði sem fararstjóri fyrir skátana í Hveragerði ;)) Hjá Hrafnhildi snýst því flest um skátana þessa dagana, enda er landsmót eitt það skemmtilegasta. Bara evvör! Svo að já, við ætlum að skella okkur til Akureyrar og ætlum að taka Ólíver Dór með :) Á milli skátafunda er Skotta svo í badminton og sundi og stundar skólann grimmt, stóð sig alveg rosalega vel á síðustu prófum :)

Elísabet er enn í fæðingarorlofi með yngstu snúlluna, hana Írenu, sem er að Ólívers mati farinn að líkjast mér. Þegar mamman spurði hvernig, var gaurinn ekki lengi að svara, jú, hún er að verða svo feit í framan ;)
Emma Dís líkist mömmu sinni svo mikið að afinn hlær stundum.  Finnst mamman vera að fá soldið til baka af öllu sem hún lét foreldrana ganga í gegnum á þessum aldri ;)

En jámm, við semsagt unum okkur bara vel, fjölskyldan, hér í sitthvoru heimshorninu (þannig séð ;))...

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 21:54:51 / berglind

Hún á ammælí dag...

Hurra for deg som fyller ditt år!
Ja, deg vil vi gratulere!
Alle i ring omkring deg vi står,
og se, nå vil vi marsjere,
bukke, nikke, neie, snu oss omkring,
danse så for deg med hopp og sprett og spring,
ønske deg av hjertet alle gode ting
og si meg så, hva vil du mere? 
Gratulere!

Jú, hún elsku besta stóra systir á afmæli í dag. Man eftir að þegar mamma átti sama afmæli var ég alveg miður mín, mér fannst hún svooo gömul ;)Til hamingju með daginn, sys!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 47173
Könnun
Er kominn tími til að hætta ?
0 atkvæði

Nei
4 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
Aðrar síður fjölskyldunnar